Fréttatilkynningar
Fréttatilkynning 04.05.2012
Ákveðið hefur verið að halda í skoðunarferð á fasteignum á Spáni daganna 16-23.maí næstkomandi. Verð aðeins kr. 49.900. Flogið verður beinu flugi með Icelandair frá Keflavík kl 07:30 og lent í Alicante kl 14:00 að staðartíma. Brottför frá Alicante viku síðar um kl 15.00 og lent í Keflavík um kl 17:30. Verð á skoðunaferð aðeins kr. 49.900. Innifalið: Flug og gisting miðað við 2 saman í íbúð.
Tilhögun ferðarinnar verður í grófum dráttum eftirfarandi:
- Dagur 1: Íslenskir starfsmenn Spánarheimilis verða með í för frá Íslandi og starfsmaður Spánarheimilis á Spáni tekur á móti viðskiptavinunum og keyrir á gististaðinn. Rólegheit og allir koma sér fyrir í hótelíbúðum við strandlengjuna.
- Dagur 2: Farið í skoðunarferð um Costa Blanca svæðið þar sem fólki er gefin góð innsýn á svæðið. Strendur svæðisins verða skoðaðar - golfvellir - miðborg Torrevieja og önnur áhugaverð svæði og staðareinkenni sem vert er að sýna fólki svo unnt sé að fá heildaryfirsýn yfir svæðið. Seinnipartinn verður farið út að borða saman og íslenskur útibússtjóri hjá spænskum banka mun mæta og spjalla við hópinn og svara spurningum um mögulega fjármögnun og önnur bankaviðskipti á Spáni.
- Dagur 3: Hópnum verður skipt upp og starfsmenn Spánaheimilis munu fara með hverjum og einum viðskiptavin í skoðunarferð á eignum á svæðinu. Skoðaðir verða eignir sem henta þörfum og kröfum hvers og eins og verða því um hnitmiðaðar skoðanir að ræða. .
- Dagur 4. Skoðun á eignum haldið áfram ef þörf þykir og rólegheit seinnipartinn.
- Dagur 5. Þeir sem hafa hug á að stofna til bankaviðskipta á Spáni fara með starfsmanni Spánarheimilis til íslenska útibússtjórans og opna reikning.
- Dagur 6 og 7: Frjálsir dagar og brottför.
Takmörkuð þátttaka í þessa ferð og þarf að staðfesta þátttöku í info@spanarheimili.is eða í síma 530-6502
Fréttatilkynning 04.10.2011
Í september síðastliðnum tóku spænsk stjórnvöld þau ákvörðun að lækka virðisaukaskatt af nýbyggingum úr 8% niður í 4% í þeim tilgangi að koma hreyfingu á sölu á gífurlegum fjölda óseldra nýbygginga á Spáni. Víða standa heilu fjölbýlishúsin fullkláruð en óseld en sérfræðingar hafa hingað til talið að 8% virðisaukaskattur á nýbyggingum sé allt of hár og sé fráhrindandi fasteignakaupendur í því ljósi að virðisaukaskattur á notuðu húsnæði er 7%. Þessi lækkun er þó aðeins tilraun yfirvalda og mun aðeins vara í 4 mánuði og fróðlegt verður að sjá þegar litið verður til baka hvort þessi aðgerð hafi breytt einhverju. Einnig hafa sérfræðingar á fasteignamarkaði nefnt að þessi ákvörðun sé einskis verð í því ljósi að þessi lækkun nær ekki til þeirra nýbygginga sem spænskir bankar hafa þurft að leysa til sín vegna þess að þær eignir teljast notaðir eignir þegar bankarnir hafa eignast þær.
Fréttatilkynning 22.02.2011
Ákveðið hefur verið að halda í skoðunarferð á fasteignum á Spáni daganna 23.mars til 27. mars næstkomandi. Flogið verður að morgni frá Keflavík til London Gatwick og þaðan í framhaldsflugi með Ryanair til Alicante og lent á staðartíma um 15:30. Flogið verður sömu leið til baka sunnudaginn 27.mars. Starfsmaður Spánarheimilis mun vera með í för frá Íslandi og starfsmenn Spánarheimilis taka á móti hópnum á flugvellinum í Alicante.
Tilhögun ferðarinnar verður í grófum dráttum eftirfarandi:
- Dagur 1: Rólegheit og allir koma sér fyrir í hótelíbúðum við strandlengjuna. Út að borða um kvöldið á veitingastaðnum Goodfellos þar sem íslenskur matreiðslumeistari er yfirkokkur.
- Dagur 2: Farið í skoðunarferð um Costa Blanca svæðið þar sem fólki er gefin góð innsýn á svæðið. Strendur svæðisins verða skoðaðar - golfvellir - miðborg Torrevieja og önnur áhugaverð svæði og staðareinkenni sem vert er að sýna fólki svo unnt sé að fá heildaryfirsýn yfir svæðið. Seinnipartinn verður farið út að borða saman og íslenskur útibússtjóri hjá spænskum banka mun mæta og spjalla við hópinn og svara spurningum um mögulega fjármögnun og önnur bankaviðskipti á Spáni.
- Dagur 3: Hópnum verður skipt upp og starfsmenn Spánaheimilis munu fara með hverjum og einum viðskiptavin í skoðunarferð á eignum á svæðinu. Skoðaðir verða eignir sem henta þörfum og kröfum hvers og eins og verða því um hnitmiðaðar skoðanir að ræða. Út að borða um kvöldið.
- Dagur 4. Skoðun á eignum haldið áfram ef þörf þykir og rólegheit seinnipartinn.
- Dagur 5. Rólegheit og brottför um miðjan dag til Íslands.
Kostnaður við þessa ferð er kr. 70.000,- á mann og er innifalið flug - gisting - allur akstur og kvöldmatur öll kvöldin. Allur kostnaður er endugreiddur ef af kaupum verður.
Takmörkuð þátttaka í þessa ferð og þarf að staðfesta þátttöku í info@spanarheimili.is eða í síma 530-6502
Fréttatilkynning 25.01.2011
Í tilefni af opnun heimasíðunnar www.spanarheimili.is í gær hefur verið ákveðið að efna til 5 daga skoðunarferðar til Spánar í mars. Verð á mann með gistingu er aðeins frá kr. 60.000,- og ef af kaupum verður munu 10 fyrstu viðskiptavinir okkar fá alla ferðina endurgreidda við undirritun afsals. Upplýsingar um tilhögun ferðarinnar er unnt að fá með fyrirspurn í gegnum info@spanarheimili.is
Fréttatilkynning 25.01.2011
Í dag kl 16:00 var vefsíðan Spánarheimili.is formlega opnuð og bjóðum við ykkur velkomin á síðuna. Við bjóðum væntanlega fasteignaeigendur á Spáni velkomna í viðskipti við okkur. Spánarheimili er eina íslenska fyrirtækið sem heldur úti öflugri heimasíðu með gagnagrunni fasteigna til sölu við MIðjarðarhafi. Við erum stolt af okkar framlagi og við vonum að þið séuð ánægð með afraksturinn.