Prenta síðu

Fullnustueignir banka


Fullnustueign er fasteign sem banki eða fjármálastofnun hefur leyst til sín vegna greiðslufalls á fasteignaláni. Upplýsingar um fullnustueignir til sölu á svæðinu má sjá hér.

Í því árferði sem er víða í heimum í dag hafa skapast mikil kauptækifæri á fasteignum og er Spánn engin undantekning þar á. Costa Blanca svæðið er með stærri sumarleyfisdvalarstöðum í Evrópu og á síðustu 10 árum hefur verið gífurleg uppbygging á sumarhúsahverfum sem þýðir að flest allar eignir eru mjög nýlegar.

Þess má geta að árið 2002 var mesti hagvöxtur í Evrópu á Costa Blanca svæðinu og þegar mest lét kepptust spænskir bankar við að lána til fasteignakaupa með ýmsum gylliboðum. Í dag eru mörg þúsundir eigna á svæðinu í eigu þessara sömu banka og fara allar þessar eignir strax í beina sölu sem þýðir að bankarnir eru mjög stórir og öflugir söluaðilar  fasteigna. Eins og gefur að skilja hefur slíkt offramboð eigna mikil áhrif á fasteignaverð sem að mati sérfræðinga er í algjöru lágmarki nú og að það muni taka bankana að minnsta kosti  nokkur ár að selja þessar eignir.

Söluauking á fasteignum hefur orðið á árinu 2010 í samanburði við árið 2009, en þessi hagstæðu og lágu verð sem hafa ekki sést á svæðinu í langan tíma hefur laðað að evrópubúa
sem sjá nú hag í því að fjárfesta í sumarhúsi á Spáni. Einnig bjóða spænsku bankarnir mun betri kjör á fasteignalánum ef fullnustueign er keypt af þeim. Sem dæmi um lánakjör nokkurra banka má nefna:  

-         
80-100% fjármögnun.
-         
Allt að 40 ára lán.
-         
Óverðtryggðir vextir frá 2,14%.
-         
Afborgunarlaust lán til 3ja ára.
-         
Kaupleiguform til allt að 7 ára.

 Spánarheimili hefur náð samningum við nokkra spænska banka um sölu á þeirra fullnustueignum og ryður nú brautina fyrir íslenska fasteignakaupendur á Spáni.
Frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofum Spánarheimilis eða í gegnum  info@spanarheimili.is