Ýmsir kaupmöguleikar
Í ljósi breyttra aðstæðna á fasteignamarkaðnum á Spáni hafa nokkur fasteigna- og byggingarfélög á Spáni tekið upp ýmiss ný kaupform á eignum sem ekki hafa sést áður. Má þar nefna allt að 100% fjármögnun eða kaupleiguform sem er áhugaverður kostur fyrir marga. Einnig er orðinn mjög fýsilegur kostur að nokkrar fjölskyldur eða vinir taki sig saman og kaupi fasteignir í sameignarformi sem gera fasteignakaupin auðveldari en sést hefur áður. Hér að neðan verða gerð skil á nokkrum áhugaverðum kaupmöguleikum.
1. Sameignarform - nokkrir aðilar kaupa saman - NÝTT.
Það getur verið mjög áhugavert fyrir fjölskyldur eða vini að kaupa sér saman íbúð eða hús æa Spáni og eiga og nota í sameiningu. Sem dæmi um þannig kaup er ef 6 fjölskyldur kaupa saman hefði hver fjölskylda úr á spila 8 vikum á ári, og er auvelt að stilla því þannig upp að hver fjölskylda eigi alltaf 3 vikur yfir sumartímann. Með þessum hætti nýtist eignin mjög vel og notkun á henni mikil. Aðilar gætu þá rekið fasteignina í gegnum sameignarform þar sem hver og ein fjölskylda greiðir þá sinn hluta af öllum rekstrarkostnaði fasteignarinnar og ef eignin er leigð eitthvað út til annarra en eiganda myndu leigutekjurnar koma inn á sameignarfélagið sem lækkaði þá um leið hlutdeild hvers og eins í rekstrarkostnaði.
Dæmi um skiptingu kostnaðar þegar 6 fjölskyldur kaupa saman:
Keypt er hús fyrir 110.000 evrur (um 17,0 milljónir)
Lán frá banka er 80% af kaupverði, eða 88.000 evrur (um 13,6 milljónir)
Mismunur greiddur til seljanda 20% af kaupverði (um 3,4 milljónir). Hver fjölskylda greiðir þannig um 570.000 kr í útborgun.
Áætlaður um 9% kostnaður við kaupin en þar af er 7% virðisaukaskattur sem kaupandi þarf ávalt að greiða. Samtals kostnaður 9.900 evrur (um 1.5 milljónir) eða um 1.650 evrur á fjölskyldu (um kr 250.000)
Samtals greiðir því hver fjölskylda um kr. 820.000 vegna kaupanna.
Áætluð mánaðarleg greiðslubyrgði láns (30 ára lán) um 340 evrur á mánuð (53.000 kr)
Áætluður mánaðarlegur rekstrarkostnaður um 200 evrur á mánuði (31.000 kr.)
Áætlaður heildar mánaðarlegur resktrarkostnaður er því um 540 evrur á mánuði eða kr. 84.000 sem gera kr. 14.000 á fjölskyldu á mánuði. Þetta er því þægileg og ódýr leið til að eignast hús á Spáni.
Framangreindur gengisútreikningur viðast mið meðalgengi evrunnar hjá Seðlabanka Íslands síðastliðna 6 mánuði (des 2010) Frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofum Spánarheimilis eða í gegnum info@spanarheimili.is
2. Kaupleiguform - NÝTT
Nokkur byggingar- og fasteignafélög á Spáni bjóða sínum viðskiptavinum upp á kaupleiguform sem er algjör nýbreytni á spænska fasteignamarkaðnum. Kaupleiguformið gengur út á það að gerður er nokkurra ára kaupleigusamningur (allt að 7 ár) þar sem kaupandinn greiðir fasta leigu á mánuði og ef af kaupum verður á samningstímanum gengur greidd leiga upp í kaupverðið. Kaupverðið er þá það verð sem aðilar hafa samið um strax í upphafi eða við undirritun kaupleigusamningsins.
Þetta kaupform hefur ýmsa kosti en með þessu móti getur kaupandinn nýtt eignina sem sína á samningstímanum og kynnt sér vel allt umhverfi og aðstæður á Spáni áður en gengið er frá endanlegum kaupum. Ef kaupandinn vill ekki nýta sér ákvæði samningsins um kauprétt getur hann afhent lyklana af eigninni og skilað henni í sama ástandi og hann tók við henni en þá er leigan sem greidd hefur verið ekki endurkræf. Einnig verður að telja það mikinn kost fyrir kaupandann að ef fasteignaverð hækkar á samningstímanum nýtur kaupandinn alls þess hagnaðar þar sem kaupverðið er niðurnjörvað á því markaðsverði sem var við upphaf samningstímans. Greitt er ákveðið lyklagjald í upphafi sem dregst frá kaupverði, verði af kaupum eftir að leigu líkur. Lyklagjaldið er almennt um 3.000 evrur (465.000 ísl kr.).
3. Hagstæð fjármögnun.
Almennt fjármagna spænskir bankar fasteignakaup upp að 70%-80% að kaupverði en ef keypt er fullnustueign af banka getur fjármögnun verið ívið meiri eða í sumum tilvikum upp í 100% af kaupverði. Lánstíminn getur verið allt að 40 ár en fer þó eftir lífaldri lánþega þar sem almennt er miðað við að síðasti gjalddagi fasteignalána sé við 75- 80 ára aldur. Vextir eru einnig hagstæðir en þeir eru á bilinu 2,14% til 4,75% og eru lánin óverðtryggð. Vextirnir eru bundnir við EURIBOR vexti ásamt vaxtaálagi viðkomandi banka. Einnig eru vextirnir endurákvarðaðir á 12 mánaða fresti og fylgja þróun Euribor. Nánari upplýsingar um lánakjör á spænskum fasteignalánum má sjá undir linknum hér að ofan um kaupferli.
Frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofum Spánarheimilis eða í gegnum info@spanarheimili.is