Makaskipti eigna
Fjöldi Íslendinga hefur á undanförnum árum og áratugum keypt heilsárshús við Miðjarðarhafið á Costa Blanca svæðinu. Síðustu misserin hefur því skapast lifandi skiptimarkaður eigna þar sem íslenskir fasteignaeigendur á Spáni og Íslandi ná samningum um makaskipti eigna á milli landa. Með sérþekkingu okkar og reynslu er þetta auðveld leið.
Makaskiptaferlið fer þannig fram að þegar kaupandinn hefur fundið réttu eignina á Spáni þar sem makaskipti koma til greina er gert formlegt kauptilboð. Kauptilboðið er gert með fyrirvara um að ítarleg skoðun fari fram á eigninni á Spáni innan tiltekins tíma og að allar væntingar og upplýsingar sem hafa verið lagðar fram um eignina séu ásættanlegar. Þegar kauptilboðið hefur verið samþykkt mun fulltrúi Spánarheimilis taka á móti væntanlegum kaupendum á Spáni og sýna þeim eignina og alla staðhætti og nánasta umhverfi við eignina. Starfsfólk Spánarheimilis mun einnig aðstoða kaupendur við að verða sér út um spænskar kennitölur og aðstoða þá við að opna spænskan bankareikning.
Ef kaupendur vilja nýta sér þá fjármögnunarmöguleika sem eru í boði í gegnum spænska banka verður komið á fundum við spænska útibússtjóra á svæðinu en þess má geta að í einum stærsta banka Costa Blanca svæðisins starfar íslenskur útibússtjóri og ekki slæmt að geta átt samskipti við spænskan útibússtjóra á íslensku. Starfsfólk Spánarheimils aðstoða kaupendur við alla gagnaöflun vegna greiðslumats kaupenda í bankanum á Spáni og sér um alla þýðingar á skjölum.
Þegar samþykki liggur fyrir hjá viðkomandi lánastofnuná Spáni koma aðilar saman og ganga frá formlegum kaupsamningi um eignina á Íslandi sem er síðan þinglýstur hjá viðkomandi sýslumannsembætti. Í beinu framhaldi þurfa kaupendur annað hvort að halda á ný til Spánar til að ganga frá kaupunum eða veita umboð til handa ábyrgum aðila á Spáni.
Á Spáni er gengið frá undirritun afsals á eigninni hjá viðkomandi sýslumanni (Notario) og gengið frá öllu uppgjöri og nauðsynlegum nafnabreytingum. Að lokum koma aðilar aftur saman og genga þar frá lokauppgjöri og afsali á fasteigninni á Íslandi sem er síðan þinglýst hjá viðkomandi sýslumannsembætti.
Við makaskipti sem þessi geta aðilar náð samkomulagi um greiðslu á milligjöfinni í annað hvort gjaldmiðlinum evrum eða íslenskum krónum.
Það skal taka það fram að makaskiptaferlið sem þetta sem lýst hefur verið hér að ofan er mun lengra ferli en þekkist í makaskiptum á eignum á Íslandi.
Sjá má frekari upplýsingar um kaupferlið á Spáni með því að smella á linkinn hér að ofan.
Með því að smella hér má sjá þær eignir á Spáni sem koma til greina í makaskiptum við fasteignir á Íslandi.