Ódýrari eignir
Fasteignaverð á Spáni hefur lækkað verulega undanfarin misseri og á sumarleyfisdvalarstöðum við Miðjarðarhafið er víða unnt að kaupa sumarhús á nánast hálfvirði miðað við það sem áður var. Aukið framboð fullnustueigna spænskra banka á spænskum fasteignamarkaði hefur leitt þessa verðþróun en víða hefur söluverð lækkað um 40-50% miðað við söluverð sambærilegra eigna árin 2006 og 2007.
Sérfræðingar á fasteignamarkaði á Spáni hafa látið það eftir sér að önnur eins verð hafi ekki sést á svæðinu í fjölda ára og að nú sé lag fyrir kaupendur að gera góð kaup áður en verðið fari að rísa á ný.
Einnig ber að geta þess að nokkur markaður hefur myndast með eignir sem þarfnast lagfæringa eða endurbóta að innan og er oft hægt að fá þessar eignir á mjög hagstæðu verði verði fyrir vikið. Sumar af þessum eignum hafa oft á tíðum staðið auðar mjög lengi og nauðsynlegu viðhaldi hefur ekki verið sinnt. Það þarf því oft ekki nema litla vinnu og lítinn tilkostnað við að koma þessum eignum í gott ástand. Það verður að teljast til mikilla tíðinda fyrir hinn íslenska fasteignamarkað að nú er unnt að fjárfesta í sumarhúsi á Spáni fyrir innan við kr. 12.000.000,- og munum við hjá Spánarheimili leitast við að draga þessar eignir fram í sviðsljósið fyrir Íslendinga.
Með því að smella á linkinn hér fáið þið upp allar þær eignir sem eru verðlagðar undir kr. 12.000.000,-
Frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Spánarheimilis eða í gegnum info@spanarheimili.is