Prenta síðu

Um okkur


Velkomin(n) á Spánarheimili.is. Á síðunni eru ítarlegar upplýsingar um hvernig fasteignakaup á Spáni ganga fyrir sig. Einnig eru helstu upplýsingar um Costa Blanca svæðið á Spáni, en það er markaðssvæðið sem við einbeitum okkur að. Jafnt og þétt munu bætast eignir á söluskránna þannig að allir ættu að geta fundið sér eign við hæfi á svæðinu.

Við hvetjum þig til að skrá þig á póstlistann okkar og fá sendar reglulega upplýsingar um áhugaverðar eignir og sérstök tilboð. Jafnframt erum við á Facebook og þar birtum við allar nýjar eignir sem koma í sölu ásamt hagnýtum upplýsingum .

Að þessari heimasíðu standa Heimili fasteignasala ehf. sem er í eigu löggiltu fasteignasalanna Boga Péturssonar og Finnboga Hilmarssonar og svo spænska þjónustufyrirtækið Costablanca.is þar sem starfa m.a. íslenskur og spænskur lögfræðingur. Starfsfólk fyrirtækjanna hafa áralanga reynslu af sölu fasteigna á Spáni og þekkir vel til allra aðstæðna og staðhátta á Costa Blanca svæðinu. Hagur kaupenda á þannig að vera tryggður í gegnum kaupferlið á Spáni, enda er um að ræða viðskipti einstaklinga á erlendri grund þar sem spænsk lög gilda. Kaupsamningar og allur frágangur er eingöngu gerður á Spáni í gegnum Notari (Sýslumann) og í samræmi við spænsk lög.

 

Hafa samband:

Nafn Netfang Titill Skilaboð